header image

Image

 Steinhúsið - gistihús og hótel íbúðir á Hólmavík

Steinhúsið er fyrsta steinsteypta húsið á Hólmavík á Ströndum, byggt árið 1911. Búið er að gera húsið upp í gamaldags stíl og er það aftur orðið bæjarprýði á Hólmavík sem er lítið sjávarþorp á Vestfjörðum. Í húsinu eru þrjár íbúðir með sér inngang þar sem boðið upp á gistingu í uppbúnum rúmum. Um er að ræða notalegt gistihús og tvær glæsilegar tveggja herbergja íbúðir. Gistihúsið og íbúðirnar er vel útbúið af öllum helstu nútíma þægindum og er frítt þráðlaust internet í húsinu.


Húsið skiptist í aðalbyggingu frá árinu 1911 og viðbyggingu frá árinu 1928. Aðalbyggingin sem er gistihúsið hefur fimm tveggja manna herbergi á efri hæð ásamt lítilli snyrtingu. Á neðri hæð eru tvær sameiginlegar stofur, rúmgott baðherbergi og vel útbúið eldhús. Í viðbyggingunni eru tvær tveggja herbergja íbúðir með góðri eldunaraðstöðu. Efri íbúðin hefur jafnframt hjónarúm og sturtu. Neðri íbúðin, staðsett í kjallara viðbyggingar, hefur hjónarúm, barnarúm, baðkar og þægilegan svefnsófa fyrir tvo í stofu.


Steinhúsið er í gamla bænum nálægt Galdrasafninu, Þróunarsetrinu, Cafe Riis og Handverkshúsi Hafþórs. Aðalbyggingin er einstaklega heimilislegt og fallegt gistihús þar sem gamli andinn fær að njóta sín. Einnig er hægt að leigja aðalbygginguna í heilu lagi sem er tilvalið fyrir stórar fjölskyldur og vinahópa. Litlu íbúðirnar eru sérstaklega notalegar og rómantískar fyrir pör sem vilja vera útaf fyrir sig með öll þægindi við hendina. Neðri íbúðin hentar jafnframt vel fyrir barnafjölskyldur. Auk góðrar gistiaðstöðu í húsinu er þar fyrirtaks aðstaða fyrir litlar ráðstefnur, veislur og námskeið.

 

Verið velkomin í Steinhúsið á Hólmavík

Steinhúsið 1911 - Höfðagata 1 - 510 Hólmavík - Sími: 856 1911 -  

 

Who's Online
We have 1 guest online